Akstursmat
Ökumaður með bráðabirgðaskírteini þarf að fara í akstursmat áður en hann fær fullnaðarskírteini
Endurnýjun bráðabirgðaskírteinis – Útgáfa fullnaðarskírteinis
Bráðabirgðaskírteini gildir í þrjú ár. Þann gildistíma má stytta. Ökumaður getur fengið fullnaðarskírteini, hafi hann haft bráðabirgðaskírteini samfellt í 12 mánuði og ekki á þeim tíma fengið punkta í punktakerfi vegna umferðarlagabrota og farið í akstursmat. Vilji ökumaðurinn ekki nýta sér þessa heimild eða fullnægi hann ekki skilyrðunum, gildir bráðabirgðaskírteinið áfram þar til það rennur út eftir þrjú ár frá útgáfudegi.
Að þeim tíma liðnum fær ökumaðurinn fullnaðarskírteini, fullnægi hann áður nefndum skilyrðum. Fullnægi hann þeim hins vegar ekki, fær hann útgefið bráðabirgðaskírteini á ný til þriggja ára.
Með því að heimila ökumönnum að fá fullnaðarskírteini eftir eitt ár í staðinn fyrir þrjú, eftir áfallalausan akstursferil og að undangengnu akstursmati, er verið að umbuna þeim sem hafa staðið sig vel í umferðinni. Það hefur jafnframt þau hvetjandi áhrif á unga ökumenn að vanda sig við akstur. Sá sem hagar sér vel í umferðinni og brýtur ekki af sér getur sem sagt fengið fullnaðarskírteini tveimur árum fyrr en ella.
Akstursmat má við útgáfu ökuskírteinis ekki vera eldra en sex mánaða.
Hvað er akstursmat?
Í akstursmati felst að kannað er hvort mat ökumanns á eigin aksturshæfni, akstursháttum og öryggi í umferðinni er í samræmi við raunverulega getu hans. Markmið akstursmats er að ökumaðurinn geri sér grein fyrir hæfni sinni og getu í umferðinni með tilliti til umferðaröryggis.
Hverjir annast akstursmat?
Ökukennari annast akstursmat.
Ökumaður ræður sjálfur hver þessara ökukennara annast aksturmatið fyrir hann og greiðir ökukennaranum fyrir matið samkvæmt gjaldskrá hans.
Hvernig fer akstursmat fram?
Akstursmat fer þannig fram að ökumaðurinn lýsir fyrir ökukennaranum eigin mati á aksturshæfni sinni og öryggi í umferðinni. Að því loknu skal ökumaðurinn aka bifreið sem hann sjálfur leggur til en ökukennarinn fylgjast með akstrinum og skrá hjá sér athugasemdir um þau atriði sem hann telur jákvæð og neikvæð í akstrinum.
Aksturinn skal fara fram þar sem reynir á sem flesta þætti sem upp geta komið í daglegri umferð. Hæfni ökumanns í umferð skal metin á vegum í þéttbýli, við mismikinn umferðarþunga, þar sem akstursskilyrði geta talist dæmigerð fyrir þá erfiðleika sem geta orðið á vegi ökumanna, þannig að verulega reyni á ökuhæfni ökumannsins. Ökukennarinn ákveður hluta akstursleiðarinnar og hluta ákveður ökumaðurinn.
Að akstrinum loknum lýsir ökumaðurinn fyrir ökukennaranum hvernig honum finnst að sér hafi til tekist og hvað hefði betur mátt fara. Ökukennarinn ber lýsingu ökumannsins saman við sínar niðurstöður og ræðir misræmi sem kann að vera þar á við ökumanninn. Gert er ráð fyrir að akstursmat taki 50 mínútur, þar af aksturinn 30 mínútur og úrvinnsla og niðurstaða 15 mínútur þar sem ökumaðurinn og ökukennarinn ræða hvernig bæta megi öryggi ökumannsins.
Niðurstaða akstursmats
Að akstursmati loknu staðfestir ökukennarinn framkvæmd þess á þar til gert eyðublað. Staðfest eyðublað skal afhent með umsókn um endurnýjun bráðabirgðaskírteinis í fullnaðarskírteini á skrifstofu sýslumanns . Umsóknareyðublað vegna endurnýjunar ökuskírteinis má nálgast hér á heimasíðu lögreglunnar.