Kennslubílarnir
VW Passat og Chevrolet Tosca
Kennslubílarnir-ökukennsla og bílpróf
Ökukennslan fer fram á beinskiptan VW Passat eða sjálfskiptan Chevrolet Tosca fyrir þá sem þurfa eða hafa áhuga á að taka ökunámið á sjálfskiptan bíl. VW Passat er skutbíll og Chevrolet Tosca er bíll af millistærð. Báðir bílarnir eru mjög þægilegir og skemmtilegir í akstri og henta vel til ökukennslu.
VW Passar beinskiptur
- VW Passat beinskiptur kennslubíll.
- Þægilegur og lipur í akstri.
- Aksturstölva sem snýnir m.a. eyðslu, ekna kílómetra og fl.
- Öryggisbúnaður er í hæsta gæðaflokki
Chevrolet Tosca sjálfskiptur
- Sjálfskiptur kennslubíll.
- Val fyrir þá sem þurfa að læra á sjálfskiptan bíl.
- Þægilegur og lipur í akstri.
- Aksturstölva.
- Öryggisbúnaður er í hæsta gæðaflokki.
Bílpróf-ökunám
Ökunám getur hafist við 16 ára aldur.
Spurt og svarað
Ýmislegt um ökunámið
Kostnaður
Hvað kostar bílprófið.
Kristján Kristjánsson ökukennari
- Sími: 892-9171
- Bílpróf: 1. apríl 1971
- Meirapróf og rútupróf: 1974.
- Ökukennararéttindi: 1986.
Hvað með fötlun eða lestrarörðuleika?
Hvenær getur þú byrjað
þú getur byrjað ökunámið við 16 ára aldur. Skynsamlegt er að ætla sér góðan tíma í ökunámið því að tímaskortur og akstur fara illa saman. Hvenær ökunám er hafið fer eftir ýmsum þáttum svo sem árstíð, búsetu, efnahag, persónulegum aðstæðum eða löngun viðkomandi til að aka. Fyrsta skrefið í ökunáminu er að ræða við ökukennara sem þú velur sjálfur. Um leið og nám hefst þarf að sækja um námsheimild til sýslumanns. Það er gert með því að fylla út umsókn um ökuskírteini..