Ökunámið

Frá æfingaleyfi að bílprófi

 

Ökunámið-frá æfingaleyfi að bílprófi.

Þegar 16 ára aldri hefur verið náð getur okunám hafist en bílprófsaldur á Íslandi er 17 ár. Fyrsta skrefið er að hafa samband við ökukennara sem upplýsir um framvindu námsins og hvernig það gengur fyrir sig.

Æfingaleyfi

Áður en hægt er að sækja um æfingaleyfi þarf nemandi að fara í 10 kennslutíma hjá ökukennara og í ökuskóla 1 en hann ökuskóla 1 er hægt að taka á netinu eða hjá Ökuskólanum í Mjódd.

Þeir nemendur sem búa á höfuðborgarsvæðinu sækja um æfingaleyfi hjá Sýslumanninum á Höfuðborgarsvæðinu Hlíðarsmára 1, Kópavogi. Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins sækja um æfingaleyfi hjá sýslumanni í sinni heimabyggð.

Þegar æfingaleyfi er fengið getur æfingaakstur hafist. Hann fer fram með foreldri/foreldrum eða öðrum sem eru eldri en 24 ára og hafa haft bílpróf í 2 ár.

Ökuskóli 2

Um 1-2 mánuði fyrir 17 ára afmælisdaginn (eða fyrr) er tímabært að fara í ökuskóla 2 (Ö-2). Hann er hægt að taka hann á netinu eða hjá Ökuskólanum í Mjódd. Í framhaldi af því er pantað skriflegt ökupróf hjá Frumherja hf., Þarabakka 3, Rvk. , í síma 570-9070, eða með því að senda tölvupóst á okuprof@frumherji.is en Frumherji annast ökupróf fyrir Samgöngustofu.

Ökuskóli 3

Næst þarf að fara í ökuskóla 3 (Ö-3)
Nám í ökugerði (ökuskóla 3) er hægt að hefja þegar nemandi hefur farið í 12 kennslutíma og lokið við ökuskóla 1 og 2. Ökuskóli 3 er æfing í skrikakstri (hálkuakstri), upplifun í veltibíl og bóklegt nám því tengt. Fyrir nemendur á Höfuðborgarsvæðinu fer Ökuskóli 3 fram á sérstöku æfingasvæði á Álfhellu Hafnarfirði. (finna má staðsetningu á ja.is). Ljúka þarf við Ö3 áður en farið er í verklegt (aksturs) ökupróf.

Ökuprófið

Að loknu námi í ökuskólum fer nemandi í síðustu verklegu (aksturs) tímana hjá ökukennaranum. Að þeim loknum fer hann í skriflegt ökupróf hjá Frumherja hf. Þarabakka 3, Rvk. sími 570-9070. Skriflega ökuprófið má taka 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælisdaginn.
Þegar nemandi hefur staðist skriflega ökuprófið sér ökukennarinn um að panta tíma í verklegt bílpróf, en í það má fara allt að 2 vikum fyrir 17 ára afmælisdaginn.
Eftir að verklega bílprófinu er náð, afhendir prófdómari nemandanum ökuskírteinið (sem gildir frá 17 ára afmælisdeginum hafi honum ekki verið náð) og nýji ökumaðurinn getur hafið akstur á eigin vegum, að sjálfsögðu með ýtrustu varúð og gætni.
Ef frekari upplýsingar óskast þá hringið í s: 892-9171 eða sendið tölvupóst á krk@simnet.is

Kristján Kristjánsson ökukennari

Ökukennarinn

Kristján Kristjánsson ökukennari

Kristján Kristjánsson ökukennari-Kennslubíllinn

Kennslubílarnir

VW Passat og Chevrolet Tosca

Kristján Kristjánsson ökukennari-Kostnaður

Kostnaður

Hvað kostar bílprófið.

Ökunámið-frá æfingaleyfi að bílprófi

Kristján Kristjánsson ökukennari

  • Sími: 892-9171
  • Bílpróf: 1. apríl 1971
  • Meirapróf og rútupróf: 1974.
  • Ökukennararéttindi: 1986.